Ungt fólk
án vímuefna




 
Áfengi

Notkun áfengis (etanól) hefur fylgt manninum í árþúsundir. Í dag er það almennt eina löglega vímuefnið á vesturlöndum en venjulegast eru einhver aldurstakmörk sett á neyslu og innkaup þess (hér á landi er miðast við aldurinn 20 ára).

Þrátt fyrir að áfengi sé löglegt er það ekki hættulaust, misnotkun á áfengi leiðir til líkamlegs- og andlegs skaða rétt eins og önnur vímuefni gera. Því meira sem maður drekkur og því lengur, þeim mun meiri verður skaðinn. Raunin er sú að heilsufarslegur og samfélagslegur skaðinn af áfengisneyslu er mun meiri heldur en af allri annari vímuefnaneyslu samanlagt...

Beini líffræðilegi skaðinn af neyslu áfengis getur verið mjög alvarlegur og  margskonar s.s. heilarýrnun, skorpulifur, hjartasjúkdómar o.fl. (nánari upplýsingar er hægt að nálgast hér). En hinn óbeini skaði getur verið alveg jafn alvarlegur og sá beini. Við neyslu áfengis losnar um hömlur, dómgreindin skerðist og árásarhneigð getur aukist. Í besta falli segir maður kannski eitthvað sem maður sér eftir seinna meir en afleiðingarnar geta verið mun verri bæði fyrir neytandann og aðra í kringum hann. Til dæmis er talið að allt að helming allra banaslysa í umferðinni megi rekja beint til ölvunar og sama prósentutala eigi við þegar morð eru framin. Tæpan þriðjung sjálfsvíga og druknana má einnig rekja beint til ölvunar.

Það tekur venjulegast nokkuð mikla og langa neyslu til að beini skaðinn fari að koma í ljós en það getur tekið bara eitt fyllerí, jafnvel það fyrsta hjá einstaklingum til þess að óbeini skaðinn gerist.



Leitarvél
Edru.is
Finna.is