Ungt fólk
án vímuefna

Lífsstíllinn hefur mikið að segja!

Því fyrr sem einstaklingur byrjar að nota vímuefni því meiri líkur eru á því að illa fari og erfitt verði að snúa aftur.  Ekkert lögmál er um að fólk þurfi á vímu að halda og ekki er hægt að sýna fram á nein jákvæð áhrif vímuefna á líkamann.  Ásókn í vímuefni (áfengi er líka vímuefni) er frekar hægt að skýra með félagslegri þörf okkar að tilheyra hópi eða "vera meðtekin" af þeim sem maður umgengst.  Þess vegna er þetta fyrst og fremst okkar val um lífsstíl og þess vegna er svo mikilvægt að maður hafi aðgang að upplýsingum sem maður getur treyst, t.d. um raunveruleg áhrif vímuefna. Vinir koma og fara en eftir situr maður uppi með sjálfan sig alla tíð og á unglingsárum er maður varla búinn að fatta hver þessi "ÉG" er. Þess vegna er skaði vímuefnanna mestur ef maður byrjar of ungur.




ÞAÐ ER LÍFSSTÍLL AÐ VERA VÍMULAUS
Ef þú ert í vandræðum með að segja nei ef vímuefni standa þér til boða ættir þú að skoða þessi tilsvör sem síðunni edru.is hefur borist frá verkefninum ÉG ÆTLA AÐ BÍÐA. Þar má sjá margar áhugaverðar ástæður sem nefndar eru fyrir því af hverju að maður bara sleppir því að byrja, hver og einn hefur sína eigin ástæðu. Maður þarf sjálfur að hafa vit fyrri sjálfum sér. Hvað ætlar þú að gera?

ÉG ætla að bíða ...

því ég vil ekki láta vímuefni eyðileggja öll mín framtíðarplön
 
vegna þess að það er ekki hægt að spóla til baka ef illa fer
 
vegna þess að mig langar að hitta fólk án þess að þurfa að hugsa um lyktina út úr mér eða hvort eitthvað sjáist í augunum og svoleiðis
 
vegna þess að mig langar að vita hvernig ég virka í þessum heimi
 
vegna þess að ég er á kafi í tónlist og mér finnst ekki til betri tilfininnig en að syngja með öllum líkamanum og finna fyrir hverri frumu, ef þið skiljið hvað ég á við
 
vegna þess að ég er ástfangin
 
vegna þess að mig langar til að lifa heil
 
því ég er nokkuð forvitinn um framtíðina
 
því næstu ár gera mig að því sem ég verð, kannski alla ævi
 
vegna þess að ég er ekki tilbúin að breytast í eitthvað annað en sjálfa mig
 
bara vegna þess að þannig get ég alltaf vitað hvað er að gerast og hverjir eru vinir mínir
 
því ég vil læra á sjálfa mig og geta sent öðrum rétt skilaboð, sérstaklega strákum auðvitað
 
af því að ég vil geta sagt satt og sleppt öllu stressi
 
því ég er verulega einstakur og vil að fólk læri smám saman að meta mig fyrir það sem ég er
 
vegna þess að mig langar að fatta sjálfan mig fyrst
 
vegna þess að ég ætla mér að verða besta mögulega útgáfan af mér
 
vegna þess að þegar ég er ég finnst mér ég geta allt, og svoleiðis vil ég vera, - á mínu svæði einhvern veginn
 
maður þarf að hafa á hreinu hvað maður er að gera til að geta gert það betur næst
 
af þvi að þegar ég les get ég upplifað allt sem ég vil og samt verið ég sjálf allan tímann
 
af því að það er nógu flókið að vera unglingur þó maður bæti ekki ruglinu við líka
 
út af því að ég er alltaf að taka myndir og finnst það bara málið
 
vegna þess að vinur bróður míns dó út af töflum sem hann tók og hann var samt nýbúinn að segja mér að hann væri með allt á hreinu
 
af því að ég ætla að kynnast mér eins og ég er
 
því ég er of upptekin við að skrifa bloggið mitt
 
vegna þess að árin fram að tvítugu er maður í bakaraofninum og eins gott að taka ekki sénsinn á að opna of snemma því þá gæti allt farið í klessu

 
 
 
 



 













 

edru.is er í eigu ÍUT-forvarnir.   Vefstjóri: Sigrún Einarsdóttir   iut@forvarnir.is