Ungt fólk
án vímuefna


Þol og ávanabinding

Þolmyndun gagnvart alkóhóli er mjög mikil. Þeir sem drekka oft og mikið verða fyrir mun minni áhrifum en þeir sem drekka sjaldan. Talið er að þetta þol stafi af breytingum á frumuhimnum sem umlykja heilafrumurnar og breytingum á viðbrögðum við boðefnum.  

Vegna þessara breytinga myndast ekki bara áfengisþol heldur getur líkaminn aðlagast alkóhólinu og orðið háður því þar sem heilinn getur ekki unnið eðlilega nema að hafa áfengi. Þess vegna koma fram fráhvarfseinkenni ef neyslu er skyndilega hætt. Algengasta fráhvarfseinkennið er ofurörvun sem einkennist af skjálfta, kvíða, pirringi, svefnleysi, útvíkkuðum sjáöldrum, svitnun og hröðum hjartslætti. Alvarlegri fráhvarfseinkenni eru krampar, ofskynjanir eða titurvilla (Delerium tremens).



Leitarvél
Edru.is
Finna.is