Ungt fólk
án vímuefna




 
Amfetamín

Amfetamín er ekki bara eitt efni heldur samheiti fyrir efnin Benzedrine, Dexedrine og Methedrine, en þau hafa öll svipaða byggingu og verkun. Amfetamín er hægt að taka í pilluformi, það snortað, sprautað beint í æð eða reykt og fer það venjulegast eftir hvaða efni á í hlut hvaða aðferð er notuð til þess að neyta þess. T.d. er methamfetamín, krystallað form amfetamíns (stundum kallað ís eða krystall), nær alltaf reykt. Rétt eins og Ecstasy (sem er mjög skylt amfetamíni) þá er amfetamín tilbúið efni sem finnst ekki í náttúrunni. 

Eiginleikar amfetamíns til að slá á hungur og þreytu hafa gert það mjög vinsælt í gegnum tíðina á meðal starfstétta sem þurftu að vaka lengi og/eða sinna líkamlega erfiðri vinnu (t.d. hermenn). Auk þess sem að efnið var talið af mörgum læknum hálfgert kraftaverkalyf  fyrr á tímum(nánar má lesa um það í sögu amfetamíns). Í dag eru neikvæðar afleiðingar efnisins hins vegar vel þekktar, allt frá nokkuð mildum líkamlegum óþægindum eins og svima, kvíða, óreglulegs hjartsláttar o.s.frv. og upp í næringarskort (anorexia), rangskynjanir, ranghugmyndir (ofsóknaræði), geðklofa og dauða. 

Tilraunir með dýr benda til þess að amfetamín (ásamt kókaín) sé á meðal öflugustu vímugjafa er þekkjast (dýrin sækja meira í að sprauta sig með þessum vímugjöfum en nokkrum öðrum).



Leitarvél
Edru.is
Finna.is