Ungt fólk
án vímuefna


 
Ecstasy

Ecstasy er efni sem líkist amfetamíni, en hefur einnig ofskynjanir í för með sér svipað og LSD. Algengasta efnið í ecstasy er methylendioxymetamfetamin (stytt í MDMA af mjög svo skiljanlegum ástæðum) og verkun þess er best þekkt. Upphaflega var efnið markaðsett undir heitinu ecstasy eða alsæla á íslensku en hefur verið kallað ýmsum nöfnum í vímuefnaheiminum, s.s. E-pilla, Adam, Eve, M&M, E, Love pill o.s.frv. Venjulegast er MDMA hvítt duft og er því dreift í í töfluformi í mismunandi útfærslum. Ekkert eftirlit er með framleiðslu þessara taflna, hvorki með magni MDMA, né heldur hvort, og þá hvaða, öðrum efnum er blandað saman við. Dæmi eru um að rottueitri hafi verið blandað í töflurnar.  

Ecstasy er oft lýst sem „party drug“ og tengist notkun þess þá við rave skemmtanahald og maraþondansa enda ein af áhrifum efnisins að fólk finnur fyrir meiri þörf fyrir að hreifa sig.  Önnur áhrif geta lýst sér í aukinni samkennd, samúð og skilningi hjá neytendanum.  

Því er stundum haldið fram (og þá sérstaklega af þeim sem selja efnið) að ecstasy sé hættulaust. Þetta eru mikil rangindi og er ecstasy mjög varasamt því það virðist geta valdið dauðsföllum við litla skammta. Þannig getur ein tafla drepið mann án þess að gera nokkur boð á undan sér. Auk þessa getur stór skammtur auðvitað verið banvænn og hættan vex séu menn veikir fyrir eða noti um leið önnur vímuefni eins og áfengi.



Leitarvél
Edru.is
Finna.is