Ungt fólk
án vímuefna


Neysluáhrif

MDMA og skyld amfetamínafbrigði hafa blandaða verkun. Verkunin er að hluta amfetamínlík og að hluta lýsergíðlík (LSD). Þannig hafa þau bæði örvandi verkun og valda rangskynjunum. Efnið tekur yfirleitt að verka eftir hálfa til eina klukkustund eftir inntöku og stendur víman yfir í um það bil 4 klukkutíma.  

  • Fyrstu áhrifunum hefur verið lýst sem örvandi „rússíbanatilfinningu". Neytandinn á mjög erfitt með að vera kyrr. Hann finnur fyrir mikilli innri gleði og umhyggju til annarra. Af þessari tilfinningu er heitið „love drug" komið. 
  • Flestir finna fyrir lystarleysi, svima og ógleði á fyrstu mínútunum. 
  • Önnur einkenni geta verið vöðvakrampar og ósjálfráðan tanngnístran. 
  • Með mikilli notkun fer að bera á sjónrangskynjunum og öðrum rangskynjunum sem geta leitt til ólíklegustu uppátækja eins og að hoppa út um glugga háhýsa eða til ofbeldisverka. 

Þegar víman fer að dvína tekur oft þunglyndi, hræðslu- eða kvíðatilfinning við af gleðitilfinningunni. Oft nefnt að „krassa“ (crash). Þessi eftiráhrif vímunnar geta verið missterk eftir einstaklingum en eftir því sem meira og lengur er neytt af ecstasy því verri verða þau. 

Einnig leggjast timburmenn eftir neyslu efnisins misjafnlega á fólk. Sumir finna fyrir litlum áhrifum næsta dag á meðan aðrir geta verið verulega þreyttir og orkulausir auk þess að finna fyrir þunglyndi og erfiðleikum að einbeita sér í allt að viku á eftir eða lengur. Við langvarandi neyslu ásamt stærri skömmtum fara þessir timburmenn versnandi og standa lengur. 

Helstu hætturnar af neyslu Ecstasy eru: 

  • MDMA veldur hraðari hjartslætti, blóðþrýstingshækkun og hækkun á líkamshita. Þetta samanlagt og aukin hreyfing (oftast dans) verður líkamanum oft um megn og getur leitt menn til dauða. 
  • Skaðsemi af völdum efnisins er margvísleg, s.s. alvarlegar skemmdir á lifur, hjarta og nýrum. Þá getur efnið valdið heilablæðingu og hjartaáfalli. 
  • MDMA er taugaeitur og getur haft varanleg áhrif og skemmdir á heila. 
  • Einnig getur efnið leitt til geðtruflana s.s. kvíða, þunglyndi og ofsóknarsturlunar. Þessi einkenni geta oft varað í nokkrar vikur eftir neysluna og geta komið eftir einn skammt en vanalegast tengjast þau langtímanotkun. 
  • Ef alvarlegar skemmdir verða á heila (nánar tiltekið á serótóninvirkum taugafrumum í miðtaugakerfinu) þá geta þessar geðtruflanir orðið varanlegar og gætu lýst sér í þá veru að einstaklingurinn hefur viðvarandi kvíða, þunglyndi og verður daufari og framkvæmdaminni. 
  • MDMA getur haft áhrif á getu til þess að einbeita sér, samhæfingu og truflað skammtímaminni (og þar með hæfileikan til þess að læra nýja hluti).


Leitarvél
Edru.is
Finna.is