Ungt fólk
án vímuefna


Saga ecstasy

MDMA var fyrst framleitt 1912 af þýska lyfjafyrirtækinu Merck. Árið 1914 fékk Merck einkaleyfi á MDMA og ætluðu líklegast að setja efnið á markað sem megrunarlyf en ekkert virðist hafa orðið af því. Efnið féll síðan í gleymsku í langan tíma fyrir utan það að Bandaríski herinn gerði tilraunir með efnið um 1950 en þær tilraunir voru svo leynilegar að um þær fréttist ekki fyrr en löngu síðar. Það er ekki fyrr en um og upp úr 1975 að efnið fer að skjóta upp kollinum. En þá byrjuðu undirheimaaðilar að framleiða og dreifa MDMA þar sem að ólíkt amfetamíni (sem er skylt MDMA og hefur svipaða verkun) þá var MDMA ekki flokkað sem ólöglegt eiturlyf. Þessi nýji vímugjafi fékk nafnið Ecstasy. Í byrjun bar ekki mikið á þessa nýja efni en nóg þó til þess að það var bannað í Bretlandi árið 1977. 

En það voru ekki bara undirheimaaðilar sem vildu nýta sér MDMA. Nokkrir geðlæknar í Bandaríkjunum hófu tilraunir með MDMA til lækninga seint á sjötta áratugnum. Þeir pukruðust með efnið af ótta við að það yrði bannað líkt og LSD og gert hafði verið í Bretlandi. Læknarnir þurftu að búa til efnið sjálfir undir handleiðslu lyfjafræðings og hafa hóp lækna til að ábyrgjast að þeir væru að gera eðlilegar og ábyrgar rannsóknir. Þegar e-pillan var bönnuð í Bandaríkjunum 1. júlí 1985 mótmæltu þessir sömu geðlæknar því harðlega (engar markverðar rannsóknir styðja þetta álit læknanna að MDMA gæti nýst í geðlækningar). Þetta kom nokkuð flatt upp á ríkisvaldið sem hafði ekki haft hugmynd um tilraunir læknanna. Þrátt fyrir mótmæli læknanna var MDMA varanlega sett á bannlista í mars 1988 (efnið var tekið út af bannlistanum 22. desember 1987 vegna formgalla þegar það var fyrst sett inn) enda var skaðsemi efnisins byrjuð að koma í ljós. 

Eftir 1980 fer að bera á samkvæmum í Þýskalandi og Bretlandi sem minntu óþyrmilega á fyrstu LSD samkvæmin í San Fransisco um 1967 og 1968 sem kölluð voru Acid Test. Vímuefnið sem nú var notað var ecstasy þó að samkvæmin væru í fyrstu kölluð Acid House. Samkvæmin fóru þannig fram að dansað var í myrkum sal við strobe ljós undir dúndrandi rave tónlist. Samkvæmin voru oft haldin í vöruskemmum og til þeirra boðið í gegnum dreifingarkerfi ólöglegra vímuefna. Allir sem mættu fengu E-töflu. Neytendurnir í Bandaríkjunum höfðu notað efnið við allt aðrar aðstæður einir eða í litlum hópum. Þessi samkvæmi bárust síðan til Bandaríkjanna og voru þar kölluð "Raves". Smám saman hafa þessar samkomur breyst og neysla E-pillu fer nú fram á ákveðnum tónleikum eða skemmtistöðum. 

Í byrjun litu neytendur svo á að ecstasy væri hættulaus og ekkert væri athugavert við neysluna. Efnið var sagt auka þörf manna fyrir að dansa og hreyfa sig. Þessi menning ef menningu skyldi kalla átti upptök sín í Bretlandi og einmitt þaðan hafa komið fréttirnar um hin tíðu dauðsföll. Við þetta hafa viðhorfin breyst eitthvað en efnið er komið til að vera á ólöglega vímuefnamarkaðinum og tengist skemmtunum unga fólksins.      



Leitarvél
Edru.is
Finna.is