Ungt fólk
án vímuefna


Þol og ávanabinding

Þol myndast mjög fljótt gegn vímuáhrifum MDMA hjá neytandanum. Við endurtekna neyslu í marga daga breytast áhrifin, ánægjutilfinningin hverfur og þunglyndi tekur við. Á þessu stigi verður neytandinn að stöðva neysluna eða auka hana verulega til að ná svipuðum áhrifum og áður. En þar sem að þol gegn vímunni myndast fljótar en gegn ýmsum hliðarverkunum geta vaxandi skammtar valdið alvarlegum einkennum eins og lýst er í neysluáhrifum. Algengt er þá hjá mörgum neytendum að neyta amfetamíns í stað e-töflu, eða sem viðbót við það. MDMA er talið afar ávanabindandi.



Leitarvél
Edru.is
Finna.is