Ungt fólk
án vímuefna

Kannabis

Kannabisefni eru unnin úr Kannabisplöntunni (Cannabis sativa) og þá aðallega úr efri laufblöðum og blómsprotum hennar. En þar er mest að finna af Kannabínóíðum sem valda vímunni. Kannabisefni koma fyrir í þremur formum:  

  • Maríhúana er veikasta afbrigðið og samanstendur af blómsprotum og laufi kannabisplantna sem er þurrkað og grófmulið. Maríhúana er venjulega reykt í heimatilbúnum sígarettum. 

 

  • Hass er mulin, sigtuð, pressuð og stundum hreinsuð kvoða unnin úr kannabisplöntum og er oftast reykt mulið í pípum eða ýmsum öðrum reykingartólum, en er stundum blandað í te.  

 

  • Hassolía er framleidd með því að láta lífræn leysiefni draga kannabínóíða úr hassi eða kannabisplöntum. Þannig verður magn kannabínóíða mun meira en annars væri hægt að ná. Hassolía er oftast notuð þannig að henni er smurt inní sígarettubréf eða að nokkrir dropar eru settir í tóbak sem síðan er reykt.

 

Kannabisvíman endist venjulega í 2 – 3 klukkutíma en þar sem að kannabis binst í fituvef getur það tekið líkamann allt að 3 – 4 vikur að losa sig við efnið. Þetta þýðir að löngu eftir að víman er búin er efnið ennþá að trufla venjulega líkamsstarfsemi. Þetta er ein af ástæðunum fyrir „flashbacks“, þ.e. vímuofskynjunum sem koma aftur óvænt nokkrum vikum eftir að kannabis var reykt síðast. Þessi upplifun getur verið óhugnaleg fyrir utan að vera hættuleg, til dæmis ef viðkomandi er að keyra bíl. 

Kannabisreykingar hafa mjög neikvæð áhrif á andlegan þroska hjá ungu fólki. Áhrif kannabis á tilfinningarnar truflar það ferli er unglingurinn byrjar að læra að standa á eigin fótum, að verða að sjálfstæðum einstaklingi, sem leiðir til þess að unglingurinn nær ekki að þroskast eðlilega.



Leitarvél
Edru.is
Finna.is