Ungt fólk
án vímuefna


Neysluáhrif

Þegar menn reykja kannabis koma áhrifin mjög fljótt í ljós þar sem að kannabínóíðar eru mjög fituleysanleg efni og flytjast með blóðinu á fáum sekúndum frá lungum og til heila. Sá sem reykir kannabis verður þannig var við verkun þess á örskömmum tíma.  

Skammtar sem eru á bilinu 1-5 mg valda því að neytandinn verður á fáum mínútum var við aukinn hjartslátt, þurrk í augum, munni og nefi og lítils háttar óþægindi í öndunarfærum. Hann getur fundið fyrir svima, doða í útlimum eða andliti, skjálfta í höndum og svita. Kvíði eða ótti innra með sér getur líka komið fyrir. Hin eiginlega víma byrjar litlu síðar. Þá finnur neytandinn ró og vellíðan og höfgi færist yfir hann. Þessar tilfinningar koma oft í bylgjum með draumkenndu ástandi á milli og virðast vera hápunktur vímunnar. Ef neytandinn er einn virðist hann sljór og syfjaður. En ef hann er í góðum félagsskap hlær hann og virðist kátur. Tímaskyn brenglast þannig að tíminn virðist líða mun hægar og fjarlægðarskyn brenglast líka.  

Við stærri skammta ber meira á brenglun í skynjun s.s. að hlutir í umhverfi neytandans taka á sig annað form en venjulega og jafnvel líkami hans líka. Einnig getur neytandinn fundið fyrir óttakennd og jafnvel ofsahræðslu í stað vellíðunar og róunar. 

  • Eftir litla skammta af THC minnkar geta manna til þess að greina ljósmerki og fylgja hlutum á hreyfingu með augunum. Hreyfingar handa verða ónákvæmari og líklega einnig allar líkamshreyfingar. 
  • Geta manna undir áhrifum kannabis til að stjórna vélknúnum farartækjum s.s. bifreiðum er verulega skert. 
  • Nýminni bilar stórlega í kannabisvímu. Neytandinn á þannig erfiðara með að muna atriði sem hann hefur nýlega reynt að tileinka sér svo sem tölur, orð o.fl. Einnig skerðist rökhugsun hjá neytandanum.  
  • Þó að litlir skammtar kannabis dragi greinilega úr námsgetu eru áhrif þess á munnlega tjáningu þó enn greinilegri. Maður í kannabisvímu á oft í verulegum erfiðleikum með að koma orðum að því sem hann vill segja. Það sem hann segir er brotakennt og úr samhengi við það sem hann vildi sagt hafa. 
  • Þeir sem reykja kannabis eru í mun meiri hættu að fá ýmiskonar lungna og öndunarfærasjúkdóma sem og krabbamein eins og venjulegir reykingarmenn. Til að mynda er meira en 50% meiri tjara í kannabis heldur en í venjulegu tóbaki. 
  • Kannabis getur haft áhrif á hormóna jafnvægi hjá báðum kynjum og hjá ungu fólki getur kannabis komið í veg fyrir eðlilegan líkamsþroska. 
  • Kannabis veikir ónæmiskerfið. 
  • Kannabis eykur hjartslátt í allt að 160 slög á mínútu og hækkar blóðþrýsting. Þetta getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir þá sem haldnir eru hjartaveilu eða háum blóðþrýstingi. 
  • Þeir sem reykja kannabis eru sex sinnum hættara við að fá geðklofa en öðrum.


Leitarvél
Edru.is
Finna.is