Ef kannabis er notað reglulega myndar neytandinn þol gegn því. Hærri skammta þarf því til að ná sömu vímu og áður. Kannabis getur leitt til bæði líkamlegar og andlegrar ánetjunar. Líkamleg ánetjun er venjulegast ekki alvarleg en fráhvarfseinkenni eru þekkt eftir áframhaldandi kannabisneyslu (svefnleysi, órói, klígja o.fl.). Þau eru þó yfirleitt væg. Andleg ánetjun getur verið erfiðari viðureignar og lýsir sér þannig að kannabisvíman er orðin þungamiðjan í tilveru viðkomandi einstaklings.