Ungt fólk
án vímuefna




 
Kókaín

Kókaín er mjög öflugur vímugjafi sem er unnin úr blöðum kókaplöntunnar (Erythroxylon coca). Algengasta formið á kókaín er hvítleitt duft sem er tekið í nef eða sprautað beint í æð.  

Verkun kókaíns er mjög svipuð og hjá amfetamíni nema hvað að kókaín verkar mun hraðar og skemur en amfetamín. Bæði efnin eru örvandi sem slá á þreytu og gefa aukið þol auk þess að slá á hungur, verki og veita vellíðunartilfinningu. Neikvæðu áhrifin af kókaínneyslu, bæði líkamleg og andleg hjá neytandanum eru mikil og alvarleg og geta hæglega leitt til dauða. En hugsanlega er mesta vandamálið með kókaín hversu rosalega andlega ávanabindandi það er.   

Krakk („crack“ á ensku) er nærri hreint kókaín blandað natroni og er útkoman gráhvítir eða gulleitir litlir krystallaðir molar sem er hægt að reykja. Krakk (nafnið er tilkomið vegna smella sem heyrast þegar efnið er reykt) hefur sömu verkun og venjulegt kókaín nema hvað vímuáhrifin eru mun kröftugri og skjótari en þegar efnið er tekið í nös. Á hinn bóginn vara áhrifin skemur og deyfðin sem fylgir í kjölfarið er mun alvarlegri



Leitarvél
Edru.is
Finna.is