Mikið þol myndast við LSD á 2 til 3 dögum. Þetta þol er svo mikið að jafnvel mjög stórir skammtar megna ekki að framkalla vímu. Þetta þol hverfur þó nokkuð fljótt aftur ef LSD er ekki neytt í nokkurra daga.
Krossþol er við önnur efni með lýsergiðlíka verkun (meskalín, psylocín o.fl.) en ekki er krossþol við kannabisefni eða amfetamín. Fráhvörf eru ekki þekkt þó eiga einstaklingar oft erfitt með svefn eftir neysluna.
Vafasamt er hvort líkamleg fíkn myndist í lýsergíð og í raun mælir hin hraða og mikla þolmyndun gegn því að svo geti verið. En eins og með öll önnur vímuefni getur myndast sálræn fíkn eftir vímuáhrifum LSD.