Ungt fólk
án vímuefna


 
Lífræn leysiefni (sniff)

Það kallast að sniffa (stundum kallað að snefa) þegar menn anda að sér gufum lífrænna leysiefna s.s. hreinsiefna, málningu, líms o.s.frv. Þessi efni er að finna víða á heimilum, vinnustöðum og ýmsum verslunum og þar með mjög auðvelt að nálgast þau. Víman af innöndun þessara efna er ekki ósvipuð þeirri sem hlýst af áfengisneyslu en er öllu hættulegri enda eru þessi efni ekki ætluð til neyslu og geta hæglega valdið alvarlegum heilaskemmdum eða dauða eftir jafnvel aðeins eina notkun. 

Mjög miklar hættur fylgja því að sniffa jafnvel þó það sé bara gert einu sinni, þessar hættur geta margfaldast ef önnur efni eru notuð samhliða sniffinu s.s. áfengi.



Leitarvél
Edru.is
Finna.is