Enginn vafi er á því að ávani og fíkn myndast í lífræn leysiefni. Flestir sniffarar sem fengið hafa ávana eða fíkn í þessi efni nota líka aðra vímugjafa, ekki síst áfengi. Hér á landi hefur reynslan samt verið sú að notkun lífrænna leysiefna til sniffunar hefur yfirleitt gengið í bylgjum en legið niðri á milli. Þol gegn vímugefandi verkun og öðrum verkunum lífrænna leysiefna getur verið mjög mikið. Fráhvarfseinkenni eru oftast væg eftir þessi efni og einkennast af:
- Svefnleysi
- Höfuðverkjum
- Skjálftum
- Pirringi
- Í alvarlegri tilfellum, krömpum
Andleg fíkn getur verið mjög sterk og tengist þá hinu félagslega umhverfi sem sniffarinn notar efnin í. Þessi félagslega hlið (hvar sniffað er og með hverjum) getur verið næstum jafn mikilvægt og víman sjálf.