Engin spurning er um ađ nikótín er verulega ávanabindandi, bćđi líkamlega og andlega. Ţol myndast einnig gegn verkunum nikótíns en mismikiđ ţó. Ţol gegn banvćnni verkun nikótíns og gegn klígju og verkun á ţarma virđist ýmist vera meira eđa miklu meira eđa standa lengur en ţol gegn verkun á ćđar og hjarta og gegn vellíđunarkennd og eflingu vökuvitundar.
Fráhvarfseinkenni eftir nikótin eru velţekkt og byrja fáeinum klukkustundum eftir ađ síđasta sígarettan var reykt. Ţau eru t.d. kvíđi, eirđarleysi, pirringur, reiđi, aukin matarlyst, hćgđatregđa, sljóleiki, hćgari hjartsláttur og ađ sjálfsögđu ásókn í tóbak. Einkenni ná venjulega hámarki eftir fáeina daga og geta stađiđ í nokkrar vikur, en geta varađ lengur og ţá sérstaklega ef mjög langa og mikla tóbaksneyslu er um ađ rćđa.